{"id":243,"date":"2016-11-22T14:00:35","date_gmt":"2016-11-22T14:00:35","guid":{"rendered":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2016\/11\/22\/eiga-almannatenglar-adh-sjast\/"},"modified":"2016-11-22T14:00:35","modified_gmt":"2016-11-22T14:00:35","slug":"eiga-almannatenglar-adh-sjast","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2016\/11\/22\/eiga-almannatenglar-adh-sjast\/","title":{"rendered":"Eiga almannatenglar a\u00f0 sj\u00e1st?"},"content":{"rendered":"<h4>Erlendis er h\u00f6r\u00f0 um r\u00e6\u00f0a um hvort almannatenglar eigi a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar \u00e1 m\u00f6nnum og m\u00e1lefnum. H\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi er \u00feessu \u00f6\u00f0ruv\u00edsi fari\u00f0 \u00fev\u00ed margir \u00edslenskir almannatenglar hika ekki vi\u00f0 a\u00f0 draga sig \u00ed flokka og nj\u00f3ta svi\u00f0slj\u00f3ssins.<\/h4>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>Erlendum s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum \u00feykir \u00feetta oft merkilegt, ekki s\u00edst vegna sm\u00e6\u00f0ar landsins og innbyr\u00f0is tengsla.\u00a0<\/p>\n<p>\u00deeir sem komast a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 erlendis hiki almannatenglar vi\u00f0 a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar ver\u00f0a stundum hissa. \u00deeim \u00feykir s\u00e9rkennilegt a\u00f0 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed a\u00f0 kenna \u00f6\u00f0rum a\u00f0 l\u00fdsa sko\u00f0unum s\u00ednum skuli for\u00f0ast a\u00f0 tj\u00e1 s\u00ednar eigin sko\u00f0anir. Almannatenglar eiga \u00fea\u00f0 flestir sameiginlegt a\u00f0 vilja helst vinna \u00e1 bak vi\u00f0 tj\u00f6ldin, fjarri svi\u00f0slj\u00f3sinu. En af hverju \u00e6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9? Af hverju vilja \u00feeir sem vinna vi\u00f0 a\u00f0 ota \u00f6\u00f0rum ekki fara fram \u00e1 v\u00f6llinn sj\u00e1lfir?\u00a0<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru eflaust margar \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir \u00fev\u00ed. Ein \u00feeirra st\u00e6rst er s\u00fa a\u00f0 ef almannatengsl eru vel unnin tekur enginn eftir \u00feeim. \u00deetta er samb\u00e6rilegt vi\u00f0 f\u00f3tboltad\u00f3mara \u2013 ef hann sinnir starfi s\u00ednu vel talar enginn um hann, ef hann er l\u00e9legur ver\u00f0ur hann a\u00f0al umr\u00e6\u00f0uefni\u00f0 eftir leikinn. \u00a0En fleira kemur til.\u00a0<\/p>\n<p>Almannatengill er l\u00edka s\u00f6luma\u00f0ur og s\u00e1ttasemjari. Hann vill s\u00ed\u00f0ur f\u00e6la fr\u00e1 tilvonandi k\u00fanna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00fdsa yfir p\u00f3lit\u00edskum sko\u00f0unum og s\u00edst vill hann f\u00e6la fr\u00e1 n\u00faverandi k\u00fanna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tala um hluti sem geta stu\u00f0a\u00f0 hann e\u00f0a eru jafnvel andst\u00e6\u00f0ir hans hagsmunum e\u00f0a sj\u00f3narmi\u00f0um. \u00dea\u00f0 eiga margir erfitt me\u00f0 a\u00f0 greina \u00e1 milli pers\u00f3nulegra sko\u00f0ana og faglegra sko\u00f0ana.<\/p>\n<p>Faglegar sko\u00f0anir \u2013 faglegt \u00e1lit \u2013 hefur ekkert me\u00f0 pers\u00f3nulegar sko\u00f0anir almannatengilsins a\u00f0 gera. Almannatengill, sem einhver akkur er \u00ed, getur s\u00e9\u00f0 marga fleti m\u00e1ls og ver\u00f0ur a\u00f0 geta tala\u00f0 fyrir \u00feeim \u00f6llum. Svipa\u00f0 og r\u00e6\u00f0uli\u00f0 \u00ed Morf\u00eds ver\u00f0ur a\u00f0 geta sannf\u00e6rt \u00e1horfendur um sko\u00f0anir sem li\u00f0smenn hafa jafnvel ekki. \u00deetta eiga margir erfitt me\u00f0 a\u00f0 skilja og segja jafnvel a\u00f0 me\u00f0 \u00feessu s\u00e9u almannatenglar a\u00f0 selja s\u00e1l s\u00edna. Ekkert g\u00e6ti veri\u00f0 fj\u00e6r lagi.<\/p>\n<p>Almannatenglar hafa flestir sett s\u00e9r strangar si\u00f0areglur sem \u00feeir fara eftir. \u00deeir gera ekkert sem telst \u00f3l\u00f6glegt, \u00feeir sinna ekki verkum sem fara gegn almannahagsmunum og \u00feeir fara \u00ed hv\u00edvetna eftir l\u00f6gum. En r\u00e9tt eins og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar, starfsmenn \u00ed heilbrig\u00f0iskerfinu og bla\u00f0amenn skilja \u00feeir a\u00f0 \u00feeirra pers\u00f3nulegu sko\u00f0anir hafa ekkert me\u00f0 vinnuna a\u00f0 gera. Hvernig f\u00e6ri fyrir l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi me\u00f0 sterkar sko\u00f0anir \u00e1 umfer\u00f0ar\u00f6ryggi en neita\u00f0i a\u00f0 verja mann sem keyr\u00f0i of hratt? Hva\u00f0 yr\u00f0i sagt um l\u00e6kni sem tilheyr\u00f0i vottum jeh\u00f3va og neita\u00f0i a\u00f0 gefa sj\u00faklingi bl\u00f3\u00f0?<\/p>\n<p>Er \u00feessi \u00f3tti vi\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0a, \u00f3tti vi\u00f0 a\u00f0 blanda saman pers\u00f3nulegum sko\u00f0unum og faglegum r\u00e9ttl\u00e6tanlegur? \u00c1 hann a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00f6llum gj\u00f6r\u00f0um r\u00e1\u00f0gjafans? Ef almannatengill tr\u00fair \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00fanni hans eigi a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar, eigi a\u00f0 koma s\u00e9r \u00e1 framf\u00e6ri \u00e1 hann \u00fe\u00e1 ekki a\u00f0 fylgja \u00feeim r\u00e1\u00f0um s\u00ednum sj\u00e1lfur? Getur hann teki\u00f0 \u00e1h\u00e6ttuna? Svari\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera j\u00e1.<\/p>\n<p>Almannatenglar vita a\u00f0 f\u00f3lk er allskonar, eins og stj\u00f3rnm\u00e1lama\u00f0ur sag\u00f0i einu sinni, og \u00feeir vita a\u00f0 f\u00f3lk sinnir flest st\u00f6rfum \u00fear sem ekkert pl\u00e1ss er fyrir pers\u00f3nulegar sko\u00f0anir. Af hverju \u00e6tti \u00feetta sama f\u00f3lk ekki a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 um almannatengla?\u00a0<\/p>\n<p>\u00cd dag, \u00feegar \u00fea\u00f0 er li\u00f0in t\u00ed\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in safnist fyrir framan sj\u00f3nvarpi\u00f0 og allir horfi \u00e1 \u00fea\u00f0 sama, er mikilv\u00e6gt a\u00f0 vera s\u00fdnilegur sem v\u00ed\u00f0ast. \u00d6flug notkun \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, \u00f6r birting efnis \u00e1 vefs\u00ed\u00f0um og \u00fe\u00e1tttaka \u00ed umr\u00e6\u00f0u\u00fe\u00e1ttum \u00ed \u00fatvarpi og sj\u00f3nvarpi styrkja \u00feann sem vill vera s\u00fdnilegur. Me\u00f0 \u00feessu h\u00e6ttir almannatengillinn samt \u00e1 a\u00f0 vera stimpla\u00f0ur \u00ed einu li\u00f0i frekar en \u00f6\u00f0ru, vera \u201eflokksma\u00f0ur\u201c. En hann ver\u00f0ur a\u00f0 taka \u00fe\u00e1 \u00e1h\u00e6ttu og tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk, v\u00e6ntanlegir k\u00fannar, er skyni bori\u00f0 og getur skili\u00f0 \u00e1 milli pers\u00f3nulegra sko\u00f0ana og faglegra.\u00a0<\/p>\n<p>Eins og \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i \u00e1 \u00feessi umr\u00e6\u00f0a ekki vi\u00f0 um \u00cdsland \u00fear sem f\u00e1ir almannatenglar hika vi\u00f0 a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar. H\u00e9r v\u00e6ri kannski r\u00e1\u00f0 a\u00f0 taka umr\u00e6\u00f0una \u00e1 hinn veginn og \u00edhuga hvort r\u00e9tt s\u00e9, eins og sumir kj\u00f3sa a\u00f0 gera, a\u00f0 vinna \u201ebehind the client,\u201c vera bakland vi\u00f0skiptavina sinna \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera \u00ed svi\u00f0slj\u00f3sinu sj\u00e1lfir. \u00a0\u00dea\u00f0 m\u00e1 vel velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort \u00edslenski almannatengillinn s\u00e9 of fyrirfer\u00f0armikill \u00e1 svi\u00f0inu og hvort sko\u00f0anir hans geti smitast yfir \u00e1 vi\u00f0skiptavinina.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Erlendis er h\u00f6r\u00f0 um r\u00e6\u00f0a um hvort almannatenglar eigi a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar \u00e1 m\u00f6nnum og m\u00e1lefnum. H\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi er \u00feessu \u00f6\u00f0ruv\u00edsi fari\u00f0 \u00fev\u00ed margir \u00edslenskir almannatenglar hika ekki vi\u00f0 a\u00f0 draga sig \u00ed flokka og nj\u00f3ta svi\u00f0slj\u00f3ssins.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":[],"categories":[14],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/243"}],"collection":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=243"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/243\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=243"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=243"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=243"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}