{"id":68,"date":"2013-08-30T16:20:27","date_gmt":"2013-08-30T16:20:27","guid":{"rendered":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2013\/08\/30\/arfleifdh-theirra-felaga-bob-cohn-og-norman-wolfe-faedhing-besta-almannatengslafyrirtaeki-heims-cohn-og-wolfe\/"},"modified":"2013-08-30T16:20:27","modified_gmt":"2013-08-30T16:20:27","slug":"arfleifdh-theirra-felaga-bob-cohn-og-norman-wolfe-faedhing-besta-almannatengslafyrirtaeki-heims-cohn-og-wolfe","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2013\/08\/30\/arfleifdh-theirra-felaga-bob-cohn-og-norman-wolfe-faedhing-besta-almannatengslafyrirtaeki-heims-cohn-og-wolfe\/","title":{"rendered":"Almannatengslafyrirt\u00e6ki og amer\u00edski draumurinn &#8211; s\u00f6nn saga"},"content":{"rendered":"<h4>\u00c1ri\u00f0 1970 stofnu\u00f0u tveir fyrrverandi bla\u00f0amenn, \u00feeir Bob Cohn og Norman Wolfe, almannatengslafyrirt\u00e6ki \u00ed Atlanta \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00cd sj\u00e1lfu s\u00e9r telst sl\u00edkt ekki til t\u00ed\u00f0inda \u00fear sem fj\u00f6ldi sl\u00edkra fyrirt\u00e6kja hefur veri\u00f0 stofna\u00f0ur \u00ed Bandar\u00edkjunum undanfarin 40 \u00e1r.<\/h4>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er hinsvegar merkilegt er a\u00f0 litla stofan sem \u00feeir stofnu\u00f0u \u00f3x fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa fj\u00f3ra r\u00e1\u00f0gjafa og tvo ritara \u00ed a\u00f0 ver\u00f0a al\u00fej\u00f3\u00f0afyrirt\u00e6ki og \u00fatungunarst\u00f6\u00f0 fyrir suma af helstu almannatenglum Atlantaborgar.<\/p>\n<p>Fyrr \u00e1 \u00feessu \u00e1ri, 43 \u00e1rum eftir stofnun fyrirt\u00e6kisins, valdi t\u00edmariti\u00f0 <em>PR Week<\/em> Cohn &amp; Wolfe besta almannatengslafyrirt\u00e6ki Bandar\u00edkjanna og jafnframt \u00ed heiminum. \u00dea\u00f0 sem \u00feeir f\u00e9lagar h\u00f3fu, og \u00fea\u00f0 sem m\u00f6rg okkar hafa unni\u00f0 a\u00f0 allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an, var\u00f0 a\u00f0 fyrirt\u00e6ki me\u00f0 62 skrifstofum v\u00ed\u00f0svegar um heiminn.<\/p>\n<p>Harold Burson, me\u00f0stofnandi Burson-Marsteller, stofunnar keypti Cohn &amp; Wolfe \u00e1 9. \u00e1ratugnum. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 h\u00f3fst \u00e6vint\u00fdralegur v\u00f6xtur fyrirt\u00e6kisins og \u00ed tilefni \u00fatnefningarinnar skrifa\u00f0i hann Bob Cohn um lei\u00f0 og hann kom \u00e1 framf\u00e6ri hamingju\u00f3skum: \u201e\u00deetta er mikill hei\u00f0ur og endurspeglar a\u00f0 m\u00ednu mati \u00fe\u00e1 skapandi arfleif\u00f0 sem \u00fe\u00fa innleiddir innan fyrirt\u00e6kisins fr\u00e1 fyrsta degi. Hamingju\u00f3skir eru vi\u00f0 h\u00e6fi til \u00fe\u00edn og Norman Wolfe og Jim Overstreet og Bob Hope og annarra sem \u00e9g man ekki hva\u00f0 heita fyrir a\u00f0 planta \u00fev\u00ed fr\u00e6i sem svo r\u00edkulega hefur bl\u00f3mstra\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Bob Cohn h\u00e9lt upp \u00e1 \u00e1fangann me\u00f0 veislu heima hj\u00e1 s\u00e9r og bau\u00f0 af \u00fev\u00ed tilefni m\u00f6rgum af helstu samstarfsm\u00f6nnum s\u00ednum gegnum t\u00ed\u00f0ina til \u00feess a\u00f0 halda upp\u00e1 \u00fea\u00f0 sem hann kalla\u00f0i m\u00f3tunar\u00e1r fyrirt\u00e6kisins, 9. og 10. \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar.<\/p>\n<p>En s\u00e1 t\u00edmi var meira en \u00fea\u00f0. \u00deetta voru vissulega \u201em\u00f3tunar\u00e1r\u201c fyrirt\u00e6kisins me\u00f0 opnun skrifstofa um \u00f6ll Bandar\u00edkin. En fyrir hundru\u00f0 af ungum almannatenglum, eins og m\u00edn, sem h\u00f3fu st\u00f6rf hj\u00e1 fyrirt\u00e6kinu a\u00f0 loknu n\u00e1mi var Cohn &amp; Wolfe sta\u00f0urinn \u00fear sem \u00feeir m\u00f3tu\u00f0u s\u00edn si\u00f0fer\u00f0ilegu vi\u00f0mi\u00f0 og reistu s\u00ednar faglegu sto\u00f0ir.<\/p>\n<p>\u00c1ratugum saman var fyrirt\u00e6ki\u00f0 \u00fatungunarst\u00f6\u00f0 \u00fear sem ungt f\u00f3lk lag\u00f0i grunn a\u00f0 \u00feeirri kunn\u00e1ttu sem \u00fea\u00f0 bygg\u00f0i \u00e1 sinn frama. \u00deetta snerist ekki bara um \u00fea\u00f0 hvernig skrifa \u00e1tti fr\u00e9ttatilkynningu, undirb\u00faa bla\u00f0amannafund e\u00f0a \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed hve margar serv\u00e9ttur \u00feyrfti fyrir hanast\u00e9l. \u00deetta snerist um hina \u00f3\u00e1\u00fereifanlegu hluti, eins og a\u00f0 fara \u00fat fyrir m\u00f6rkin og koma me\u00f0 eitthva\u00f0 \u00f3v\u00e6nt og frumlegt og \u00fea\u00f0 hvernig \u00e6tti a\u00f0 lei\u00f0beina f\u00f3lki og hvetja \u00fea\u00f0 til d\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 bjuggum til vi\u00f0skipta\u00e1\u00e6tlanir sem marka\u00f0sf\u00e6r\u00f0u v\u00f6rur og \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0skiptavina okkar \u00e1 frumlegan og kerfisbundinn h\u00e1tt sem t\u00f3ku \u00fatgangspunkt \u00ed kjarnastarfsemi\/meginmarkmi\u00f0um hvers fyrirt\u00e6kis. \u00dea\u00f0 f\u00f3l \u00ed s\u00e9r a\u00f0 vi\u00f0 fundum lei\u00f0ir til a\u00f0 selja fleiri kj\u00faklingasamlokur fyrir Chick-fil-A, auka n\u00fdtingu hj\u00e1 Marriott-h\u00f3telinu og fj\u00f6lga gestum \u00e1 Coca Cola Olympic City.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um einnig hva\u00f0 var \u00ed raun m\u00f6gulegt fyrir Bob Cohn, Norman Wolfe og teymi \u00feeirra. \u00cd hugarf\u00e1rvi\u00f0rinu hlustu\u00f0um vi\u00f0 agndofa \u00e1 \u00fe\u00e6r frumlegu og n\u00fdst\u00e1rlegu hugmyndir sem endalaust virtust streyma fr\u00e1 h\u00f6f\u00f0i Bobs.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 horf\u00f0um \u00e1 Jim Overstreet og Norman Wolfe r\u00e1\u00f0a fram \u00far kr\u00edsum af mikilli fagmennsku, \u00feekkingu og sj\u00e1lfs\u00f6ryggi. Auk \u00feess s\u00e1um vi\u00f0 hvernig \u00feeir bygg\u00f0u upp og styrktu samb\u00f6nd vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini fyrirt\u00e6kisins. Fyrirt\u00e6kin voru ekki bara hj\u00e1 Cohn &amp; Wolfe \u00ed r\u00famlega tv\u00f6 \u00e1r og leitu\u00f0u svo \u00e1 \u00f6nnur mi\u00f0. \u00deau voru hj\u00e1 Cohn &amp; Wolfe \u00e1ratugum saman. \u00dea\u00f0 var \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 ver\u00f0a vitni a\u00f0 \u00fev\u00ed trausti sem r\u00edkti milli stofunnar og vi\u00f0skiptavina hennar.<\/p>\n<p>Fyrir mig pers\u00f3nulega eru minningarnar l\u00f6ngu li\u00f0inna atbur\u00f0a jafnlifandi n\u00fa og \u00fe\u00e6r voru \u00feegar \u00feeir ger\u00f0ust. \u00c9g man eftir a\u00f0 hafa sta\u00f0i\u00f0 fyrir framan Coca-Cola Olympic City klukkan \u00ferj\u00fa a\u00f0 n\u00f3ttu \u00e1ri\u00f0 1996 me\u00f0an \u00e1 \u00d3lymp\u00eduleikunum st\u00f3\u00f0 b\u00ed\u00f0andi eftir \u00e1str\u00f6lskum fr\u00e9ttam\u00f6nnum. E\u00f0a a\u00f0 hafa keyrt um Washington-r\u00edki \u00e1ri\u00f0 1990 me\u00f0 risast\u00f3rt myndaalb\u00fam og vitanlega j\u00f3lapart\u00edum Cohn &amp; Wolfe sem voru heitustu j\u00f3lapart\u00edin \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n<p>Hef\u00f0in lifir enn. \u00cd dag eru fyrrum starfsmenn Cohn &amp; Wolfe helstu r\u00e1\u00f0gjafar \u00ed sumum af st\u00e6rstu fyrirt\u00e6kjum heims, m.a. Coca-Cola, The Home Depot og Wal-Mart. Einn af okkur er framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Young &amp; Rubicam, einnar st\u00e6rstu augl\u00fdsingastofum heims. Fj\u00f6ldinn allur af fremstu augl\u00fdsingastofum, marka\u00f0sstofum og almannatengslafyrirt\u00e6kjum, b\u00e6\u00f0i \u00ed Atlanta og annarssta\u00f0ar \u00ed Bandar\u00edkjunum, er st\u00fdrt af f\u00f3lki sem h\u00f3f ferilinn hj\u00e1 Cohn &amp; Wolfe \u00ed Atlanta.<\/p>\n<p>\u00deau eru f\u00e1 fyrirt\u00e6kin sem fylgjast me\u00f0 starfsf\u00f3lki s\u00ednu \u00e1ratugum saman, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 sameina \u00fea\u00f0 40 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. Cohn &amp; Wolfe var meira en bara vinnusta\u00f0ur. \u00dea\u00f0 var fj\u00f6lskylda sem vann h\u00f6r\u00f0um h\u00f6ndum saman, h\u00e9lt upp \u00e1 sigra og skvetti \u00e6rlega \u00far klaufunum (nokku\u00f0 sem okkur hefur f\u00f6rlast \u00ed seinni t\u00ed\u00f0).<\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.3em;\">Ver\u00f0launin fr\u00e1 <em>PR Week<\/em> s\u00fdna a\u00f0 andinn lifir \u00e1fram. M\u00f3tunar\u00e1rin eru vissulega a\u00f0 baki, en \u00fea\u00f0 eru engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur spennandi t\u00edmar framundan.<\/span><\/p>\n<p><em><span style=\"line-height: 1.3em;\">Mitch Leff<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"line-height: 1.3em;\">Cohn &amp; Wolfe sameina\u00f0ist GCI Group Grey \u00e1ri\u00f0 2008. \u00cdslenska skrifstofan var stofnu\u00f0 \u00ed nafni GCI. \u00c1kve\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 halda nafni Cohn &amp; Wolfe og a\u00f0greina GCI Health, sem var \u00e1\u00f0ur d\u00f3tturfyrirt\u00e6ki GCI, fr\u00e1 n\u00fdja sameina\u00f0a fyrirt\u00e6kinu. Cohn &amp; Wolfe var upphaflega almannatengslafyrirt\u00e6ki Young &amp; Rubicam (stofna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1927), \u00e1samt Burson Marsteller og GCI upphaflega almannatengslafyrirt\u00e6ki Grey Group (stofna\u00f0 1917). Grey og Young &amp; Rubicam eru d\u00f3tturfyrirt\u00e6ki WPP (wpp.com). Starfsmenn WPP Group eru um 100 \u00fe\u00fasund \u00e1 um 2.000 skrifstofum \u00ed 106 l\u00f6ndum og eru 12 me\u00f0 a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00ed Reykjav\u00edk. WPP er eina al\u00fej\u00f3\u00f0afyrirt\u00e6ki\u00f0 sem rekur skrifstofur \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 svi\u00f0i bo\u00f0mi\u00f0lunar en fyrir utan Cohn &amp; Wolfe rekur WPP birtingafyrirt\u00e6ki\u00f0 MediaCom \u00e1 \u00cdslandi. Grey Team \u00cdslandi er rekstar\u00fej\u00f3nusta s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ifyrirt\u00e6kja WPP \u00e1 \u00cdslandi. Eignarhald \u00edslenska \u00fatib\u00fasins er vista\u00f0 hj\u00e1 Mannov Ogilvy \u00ed Danm\u00f6rku.<\/span><\/em><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>{loadposition skyldar}<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1ri\u00f0 1970 stofnu\u00f0u tveir fyrrverandi bla\u00f0amenn, \u00feeir Bob Cohn og Norman Wolfe, almannatengslafyrirt\u00e6ki \u00ed Atlanta \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00cd sj\u00e1lfu s\u00e9r telst sl\u00edkt ekki til t\u00ed\u00f0inda \u00fear sem fj\u00f6ldi sl\u00edkra fyrirt\u00e6kja hefur veri\u00f0 stofna\u00f0ur \u00ed Bandar\u00edkjunum undanfarin 40 \u00e1r.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":[],"categories":[14],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/68"}],"collection":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=68"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/68\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=68"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=68"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=68"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}