{"id":85,"date":"2013-11-22T14:53:27","date_gmt":"2013-11-22T14:53:27","guid":{"rendered":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2013\/11\/22\/verndun-skilabodha-hvernig-verndar-thu-voerumerkidh-thitt-a-netinu\/"},"modified":"2013-11-22T14:53:27","modified_gmt":"2013-11-22T14:53:27","slug":"verndun-skilabodha-hvernig-verndar-thu-voerumerkidh-thitt-a-netinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/2013\/11\/22\/verndun-skilabodha-hvernig-verndar-thu-voerumerkidh-thitt-a-netinu\/","title":{"rendered":"Vernda\u00f0u v\u00f6rumerki\u00f0 \u00feitt \u00e1 netinu"},"content":{"rendered":"<h4>Fyrir sk\u00f6mmu st\u00f3\u00f0u\u00a0<a href=\"http:\/\/www.lex.is\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">L\u00f6gmannsstofan Lex<\/a> og <a href=\"http:\/\/www.zeusmark.com\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">r\u00e1\u00f0gjafafyrirt\u00e6ki\u00f0 Zeusmark<\/a> fyrir fr\u00f3\u00f0legu erindi me\u00f0 titilinum\u00a0<em>Brand Proactive<\/em>. \u00dear voru raktar nokkrar af \u00feeim \u00f3gnum sem v\u00f6rumerki standa frammi fyrir \u00e1 netinu.<\/h4>\n<p>  <!--more-->  <\/p>\n<h4>Eins og titilinn bera me\u00f0 s\u00e9r snerist erindi\u00f0 a\u00f0 nokkru leyti um forvarnir. \u00dea\u00f0 er \u00ed g\u00f3\u00f0u samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem Cohn &amp; Wolfe \u00cdslandi metur sem skynsamlega n\u00e1lgun \u00ed almannatengslum og m\u00f6rkun v\u00f6rumerkja.<\/h4>\n<p>Skr\u00e1ning v\u00f6rumerkja hefur lengi veri\u00f0 \u00feekkt. H\u00fan er li\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vernda \u00fea\u00f0 sem v\u00f6rumerki\u00f0 stendur fyrir (skilabo\u00f0in) og byggja undir traust &#8211; forv\u00f6rn. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hefur skr\u00e1ning l\u00e9na or\u00f0i\u00f0 mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed skr\u00e1ningu v\u00f6rumerkja og verndun \u00feeirra. En frelsi og landam\u00e6raleysi netsins er tv\u00edeggja\u00f0 sver\u00f0 sem ver\u00f0ur a\u00f0 kunna beita \u00e1 r\u00e9ttan h\u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00d3pr\u00fattnir a\u00f0ilar notf\u00e6ra s\u00e9r traust og or\u00f0spor \u00feekktra v\u00f6rumerkja sj\u00e1lfum s\u00e9r til framdr\u00e1ttar. F\u00f3lk er \u00ed raun gabba\u00f0. A\u00f0ge\u00f0irnar eru \u00ed besta falli vafasamar en oft algj\u00f6rlega \u00f3l\u00f6glegar. Geirar eru misvi\u00f0kv\u00e6mir fyrir misnotkun. T.d. eru al\u00fej\u00f3\u00f0leg tryggingaf\u00e9l\u00f6g, h\u00f3tel og flugf\u00e9l\u00f6g, leikjai\u00f0na\u00f0urinn, lyfjai\u00f0na\u00f0urinn og t\u00edskui\u00f0na\u00f0urinn s\u00e9rlega vi\u00f0kv\u00e6m \u00e1 \u00feessu svi\u00f0i, svo einhver d\u00e6mi s\u00e9u nefnd.<\/p>\n<h3>Hva\u00f0a a\u00f0fer\u00f0um er beitt? Hvernig eru v\u00f6rmerki misnotu\u00f0?<\/h3>\n<p>A\u00f0fer\u00f0irnar felast \u00ed mismunandi skr\u00e1ningum \u00e1 l\u00e9num sem tengjast heitum v\u00f6rumerkja. Tilgangurinn getur veri\u00f0 a\u00f0 stela netumfer\u00f0. \u00deessi umfer\u00f0 er s\u00ed\u00f0an n\u00fdtt til a\u00f0 selja falsa\u00f0ar e\u00f0a stolnar v\u00f6rur, selja v\u00f6rur \u00ed samkeppni, selja smelli \u00ed gegnum augl\u00fdsingar e\u00f0a jafnvel til beinna skemmdarverka e\u00f0a k\u00fagunar gagnvart v\u00f6rumerki.<\/p>\n<p>D\u00e6mi um svona l\u00e9naskr\u00e1ningar er stafaruglingur v\u00f6rumerkis <em>(brand ver\u00f0ur barnd o.\u00fe.h.)<\/em>, mikilv\u00e6gum lykilor\u00f0um er b\u00e6tt vi\u00f0 heiti v\u00f6rumerkis <em>(brand-shoes, brand-online o.s.frv.)<\/em> og sta\u00f0setningu er b\u00e6tt vi\u00f0 heiti v\u00f6rumerkis <em>(brand-reykjavik o.\u00fe.h.)<\/em>. Anna\u00f0 d\u00e6mi eru mismunandi landsskr\u00e1ningar l\u00e9na <em>(.is, .de, .se o.s.frv.)<\/em>. Ein algengasta misskr\u00e1ningin felst hins vegar \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 skr\u00e1 nafn v\u00f6rmerkis me\u00f0 vi\u00f0b\u00e6ttu www fyrir framan og \u00e1n punkts \u00e1 milli <em>(wwwbrand)<\/em>.<\/p>\n<p>\u00deekkt eru \u00f3tal d\u00e6mi um skr\u00e1ningar l\u00e9na af \u00feessu tagi. Ska\u00f0i sem v\u00f6rumerki ver\u00f0a fyrir getur veri\u00f0 g\u00edfurlegur \u00feegar verst l\u00e6tur. Hann getur stafa\u00f0 af minni s\u00f6lu, minni framleg\u00f0, meiri kostna\u00f0i vi\u00f0 marka\u00f0f\u00e6rslu \u00e1 netinu og minna trausti vi\u00f0skiptavina.<\/p>\n<h3>F\u00e6r\u00f0u allan t\u00f6lvup\u00f3stinn \u00feinn? Er einhver annar a\u00f0 lesa hann?<\/h3>\n<p>\u00dea\u00f0 er algengara en margur heldur a\u00f0 stafaruglingur e\u00f0a \u00f6nnur misskr\u00e1ning eigi s\u00e9r sta\u00f0 \u00feegar f\u00f3lk sl\u00e6r inn t\u00f6lvup\u00f3stf\u00f6ng. Ranns\u00f3knir og athuganir hafa s\u00fdnt a\u00f0 talsver\u00f0ur hluti t\u00f6lvup\u00f3sts kemst ekki til skila e\u00f0a kemst \u00ed rangar hendur.<\/p>\n<p>F\u00f3lk, t.d. vi\u00f0skiptavinir, sem f\u00e1 ekki svar vi\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3sti f\u00e1 \u00e1 tilfinninguna a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 hundsa\u00f0. Einnig er \u00fea\u00f0 bagalegt fyrir fyririt\u00e6ki \u00feegar tr\u00fana\u00f0aruppl\u00fdsingar komast \u00ed rangar hendur. \u00dea\u00f0 er jafnvel \u00feekkt a\u00f0 a\u00f0ilar sem halda utan um vafasamar skr\u00e1ningar l\u00e1ti t\u00f6lvup\u00f3st, sem \u00feeim berst, berast \u00e1fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 neinn ver\u00f0i \u00feess var. Me\u00f0 \u00feessu m\u00f3ti getur vi\u00f0komandi \u00ed raun stunda\u00f0 nj\u00f3snir.<\/p>\n<h3>Hva\u00f0 skal gera? Hver er forv\u00f6rnin?<\/h3>\n<p>Fyrirt\u00e6ki og eigendur v\u00f6rumerkja \u00feurfa a\u00f0 marka s\u00e9r stefnu var\u00f0andi l\u00e9naskr\u00e1ningar. Vega \u00fearf og meta kostna\u00f0 vi\u00f0 skr\u00e1ningar l\u00e9na \u00e1 m\u00f3ti hugsanlegu tj\u00f3ni sem hlotist g\u00e6ti af \u00f3hei\u00f0arlegum skr\u00e1ningum annars a\u00f0ila. Fyrirt\u00e6ki me\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0lega starfsemi \u00feurfa a\u00f0 vera s\u00e9rlega v\u00f6kul yfir landsskr\u00e1ningum og \u00e1kve\u00f0a hver beri \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 skr\u00e1ningum og \u00fathluti l\u00e9num.<\/p>\n<p>Engar sk\u00fdrar reglur eru til um skr\u00e1ningu notendanafna e\u00f0a vefsl\u00f3\u00f0a fyrir f\u00e9lagsmi\u00f0la. V\u00f6rmerki \u00feurfa a\u00f0 hafa vakandi auga me\u00f0 \u00feessu. \u00dea\u00f0 getur t.d. margborga\u00f0 sig fyrir eiganda v\u00f6rumerkis a\u00f0 skr\u00e1 1000 twitter-reikninga me\u00f0 heitum sem tengjast heiti v\u00f6rumerkisins, jafnvel \u00fe\u00f3tt virkni v\u00f6rumerkisins \u00e1 twitter ver\u00f0i enginn. Tilgangurinn er forv\u00f6rn sem felst \u00ed hindrun \u00e1 misnotkun.<\/p>\n<p><em> Cohn &amp; Wolfe \u00cdslandi \u00feakkar L\u00f6gmannsstofunni Lex og Zeusmark fyrir \u00e1hugavert erindi og umr\u00e6\u00f0ur. <\/em><\/p>\n<h4>Haf\u00f0u samband vi\u00f0 okkur ef \u00feig vantar r\u00e1\u00f0gj\u00f6f vi\u00f0 m\u00f6rkun \u00fe\u00edns v\u00f6rumerkis og verndun skilabo\u00f0a.<\/h4>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir sk\u00f6mmu st\u00f3\u00f0u\u00a0L\u00f6gmannsstofan Lex og r\u00e1\u00f0gjafafyrirt\u00e6ki\u00f0 Zeusmark fyrir fr\u00f3\u00f0legu erindi me\u00f0 titilinum\u00a0Brand Proactive. \u00dear voru raktar nokkrar af \u00feeim \u00f3gnum sem v\u00f6rumerki standa frammi fyrir \u00e1 netinu.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":[],"categories":[14],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/85"}],"collection":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=85"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/85\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=85"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=85"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/workspace.cohnwolfe.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=85"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}